Til hamingju mbl.is..

..fyrir að nota hugsanlega lélegustu ljósmynd sem hefur verið tekin af golfara í mörg ár
mbl.is Garcia með snilldartakta á Carnoustie
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hverjum er ekki sama ?

Ég hef lokið máli mínu
mbl.is Knútur laus við tannpínuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjir Maxfli boltar

23444_bolti Nýjast í fréttum er að sjálfur John Daly er búinn að hanna golfkúlur fyrir Maxfli og fullyrðir sérfræðingar að þetta séu högglengstu golfkúlurnar á markaðnum í dag. John Daly færi nú varla að setja nafn sitt á kúlur sem fljúga styttra en aðrar þar sem hann er búinn að vera högglengsti kylfingur PGA mótaraðarinnar 11 sinnum. Þessar kúlur verða pottþétt prufaðar í sumar, og það er líka eins gott að þær virki !

Boo Weekley sigrar á Verizon Heritage mótinu

6526440_36_1Þá er það staðreynd af Ernie Els náði ekki að hampa sigri á Verizon Heritage mótinu en það var Boo Weekley sem stal senunni á lokaholunum í dag. Síðasta keppnisdegi í gær var frestað vegna of mikils vinds þangað til í dag, en öll holl voru komin út nema lokahollið í gær. Weekley hélt að hann væri búinn að klúðra sigrinum eftir að hafa fengið skolla á 16 braut en Ernie klúðraði algjörlega á að komast aftur í baráttuna á 17 holu þegar hann skaut út fyrir braut og klúðraði síðan innan við 1 metra pútti til að jafna. Hinsvegar reddaði Weekley sér úr öllum vandræðum með því að vippa ofan í á tveimur síðustu holunum, ekki á hverjum degi sem það gerist, hvað þá á PGA. Jerry Kelly sem var í baráttunni fyrir lokahringinn klúðraði sínum möguleikum á sigri þegar hann skaut útí vatnið á 10. holu, hann endaði hringinn í dag á 77 höggum.

Með sigrinum á þessu móti fékk Boo Weekley rúmlega 63 milljónir kr. beint í vasann og líka keppnisrétt á PGA mótaröðinni út árið 2008. 

Hér eru síðan smá tölfræði yfir gengi Weekley á mótinu:

Ernir: 3
Fuglar: 14
Pör: 49
Skollar: 2
Skrambar: 0
Hittar brautir: 75%
Drive högglengd: 264 metrar
Pútt á hring: 24.3
Pútt á holu:  1.6
Hittar flatir: 55.6%

Til hamingju Boo !


mbl.is Weekley hafði betur gegn Els
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ernie að ná sér á strik

t1_elsErnie Els er magnaður. Fyrir mótið sagðist hann vera 100% viss um að hann myndi vinna þetta mót og er hann nú á mjög góðri leið með það. Þó svo hann hafi ekki komist í gegnum niðurskurðinn á Masters sem var í fyrsta sinn síðan 1999 sem hann kemst ekki í gegnum niðurskurð á móti eins og sagt var í fréttinni, þá er Ernie samt byrjaður að ná sér á strik. Eins og flestir vita meiddist hann illa á hné árið 2005 og virðist hann ennþá vera ná sér eftir það, en þessum meiðslum fylgdu margar aðgerðir. Þannig ég held að Ernie Els sé að fara komast í gamalt form núna og hann á eftir að vera oftar í baráttunni á túrnum í sumar.

 

Ég óska honum alls hins besta og vonandi sigrar hann Heritage mótið.


mbl.is Els hefur ekki sigrað á PGA-móti í þrjú ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3 ernir og endar á +5

Scott með 3 erniÞað er ekki skrýtið að sjá mann sem er að skila inn skorkortið með 3 örnum á enda hringinn á svona mörgum höggum. Sá sem fær 3 erni á 18 holum tekur áhættu í hvert skipti sem honum býst og getur það oft verið dýrt þegar það klikkar. Ég meina, maður fer ekki holu á 6 yfir pari á evrópsku mótaröðinni. Þessi gæji hefur ætlað að ná sér í annan örn þarna á 13.holu og klikkað í teighöggi og tekið þá annan séns til að bjarga sér úr þessu klandri sem endaði aftur illa.

 Það sem þetta kennir okkur er, að það er betra að halda sig við fuglana Wink


mbl.is Skrautlegt skorkort hjá skoska kylfingnum Drummond
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Zach Johnson í Letterman

b_ls_dave Daginn eftir sigurinn á Masters mótinu þá var Zach Johnson strax byrjaður að mæta í spjallþættina. Hann mætti í tvo spjallþætti á mánudeginum hjá Regis og síðar hjá David Letterman þar sem hann las upp Top10 listann yfir hluti sem hann getur sagt núna eftir að hann er búinn að vinna Masters. Þið getið lesið Top10 listann HÉR og þarna er einnig hægt að sjá myndbrot úr þættinum þar sem hann les upp listann.

Zach Johnson hækkar á heimslistanum

Zach JohnsonUppfærsla er komin á heimslistann eftir Masters mótið og það má sjá að það eru ekki miklar breytingar þarna á ferð. Tiger Woods er enn lang efstur á listanum og það lýtur ekki út fyrir það að einhver sé að fara ná honum í framtíðinni. Eini maðurinn sem ég tel hafa einhvern möguleika á því að ná að naga aðeins í hælana á Tiger í framtíðinni er Adam Scott. En hann er lang yngstur á Top10 listanum og á því nóg eftir.

Það sem Mbl.is gleymdi alveg að minnast á í frétt sinni er að Zach Johnson er fyrsti kylfingurinn í sögunni til að vera fyrir ofan 50 sæti á heimslistanum og vinna Masters mótið. Telst það vera nokkuð góður árangur en eins og segir í fréttinni hækkaði hann um 41.sæti með sigrinum á mótinu. Spurning hvort hann haldist svona ofarlega í framtíðinni ? Nú er bara að sjá og fylgjast með.


mbl.is Græni jakkinn skilaði Johnson í 15. sæti heimslistans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Masters búið

Zach Johnson er klæddur í Græna jakkannÞá lauk Masters mótinu og verður maður að teljast vera frekar svekktur eftir mótslok. Í fyrsta lagi vorum við ekki að sjá bestu kylfinga heims leika besta golf í heimi, það var alltof mikið um klúður. Það má þó kenna vellinum um sem hefur víst aldrei verið jafn erfiður. Flatirnar eiga að vera þær hröðustu í heimi. Það segir sig sjálft að sá sem vann hafi unnið þetta á einu höggi yfir pari.

Þó svo það hafi verið stutta spilið sem átti að skilja kylfingana að í þessu móti þá var minn maður Mickelson ekki að stimpla sig í hóp þeirra sem voru að gera góða hluti í stutta spilinu. Þó svo það hefur verið hans kennileiti í gegnum árin. Það var á sumum tímapunktum hálfger pína að fylgjast með skógarferðunum hans, en stundum náði hann að bjarga sér á ótrúlegan hátt. En ég er þó hvergi nærri sáttur að sjá hann ekki í baráttunni.

Það er samt gaman að sjá lítt þekktan kylfing eins og Zach Johnson vinna risamót eins og þetta. Þó svo það hefur reynst lítt þekktum kylfingum eins og honum erfitt í gegnum tíðina að vinna risamót. Þeir eiga það til að missa dampinn eftir sigurinn og gleymast. 

En þá er bara að bíða fram á næstu helgi þegar það verður sýnt frá Verizon Heritage mótinu. Spurning hvort við eigum nokkuð eftir að sjá marga þekkta kylfinga á því móti, þeir verða líklegast allir ennþá útá æfingasvæði að finna út hvað klikkaði á Masters.

Golfkveðjur, Ragnar.


mbl.is Woods: „Augusta völlurinn var erfiður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Woods æði

Já sniðugt að hafa mynd af þeim sem tapaði. Ég hefði nú frekar mikið meira viljað sjá mynd af O'Hern heldur en Woods. Eru ekki allir hvort sem er komnir með leið á honum ?

mbl.is Woods tapaði gegn Nick O'Hern
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband